Um lífið, tilveruna og trúna
Æðruleysi kjarkur vit - Orð til uppörvunar á erfiðum tímum
Þetta bókarkorn geymir huggunarorð, bænir og örsögur af ýmsu tagi sem varpa ljósi á æðruleysisbænina.
Æðruleysisbænin er mörgum kunn og kær. Fólk sem unnið hefur með tólf spora kerfið, t.d. innan AA samtkanna og á námskeiðum í kirkjum undir heitinu Tólf sporin - andlegt ferðalag, hefur notið þeirrar gæfu að hafa tileinkað sér æðruleysisbænina.
En æðruleysisbænin á erindi til allra í atvikum daganna.
Hún hefur reynst hughreysting og haldreipi þegar tekist er á við ósigra og erfiðleika. En hún er líka styrkur og leiðsögn á daglegri för í margbreytilegum aðstæðum.
kr. 790,-
Flokkar: Hugleiðingabækur
Hönd í hönd

Í bókinni Hönd í hönd hugleiða fimmtíu Íslendingar hvernig hægt sé að bregðast við áföllum í lífinu, erfiðleikum eða sorg. Hugleiðingar og leiðbeiningar eru settar fram í sögum, ljóðum og stuttum íhugunum. Allir kaflarnir eiga það þó sameiginlegt að byggja að einhverju leyti á reynslu þess sem skrifar. Höfundar koma úr ýmsum áttum og eru á öllum aldri. Þetta eru karlar og konur, mæður og feður, synir og dætur sem hafa öll með einum eða öðrum hætti glímt við erfiðleika í lífinu. ISBN 9979-765-27-5 - 146 bls. -
Bókin kostar 2.200 krónur.
Flokkar: Hugleiðingabækur
FYRIRGEFNING OG SÁTT

Reiði og ásökun í annars garð er þung byrði að bera, ekki síst nú þegar sársauki og biturð grafa víða um sig í samfélaginu í kjölfar efnahagshrunsins.
Í þessa bók skrifa 86 Íslendingar um fyrirgefningu og sátt út frá ýmsum sjónarhornum. Mörgum spurningum er varpað fram:
* Er alltaf hægt að fyrirgefa?
* Hvað er iðrun?
* Er reiði eðlileg tilfinning?
* Er hægt að lifa ósáttur?
Þessar og fleiri spurningar glíma höfundar við í óvenjulegum aðstæðum íslensks samfélags nútímans; hvernig þeir taka á fyrirgefningu og sátt í samskiptum við fjölskyldu og maka, vini og vinnufélaga en einnig andspænis veikindum og missi, vonbrigðum og misnotkun.
Höfundar koma víða að úr samfélaginu og túlka mismunandi lífsreynslu.
Bókin var skrifuð á þessu ári. Tilboðsverð í Kirkjuhúsinu kr. 990,-
Flokkar: Andleg leiðsögn, Spurningar lífsins
FLEIRI ORÐ Í GLEÐI

FLEIRI ORÐ Í GLEÐI
Bókin geymir gott veganesti út í dagsins eril og amstur. Hún er framhald metsölubókarinnar Orð í gleði, sem margir Íslendingar þekkja. Þessar bækur eru teknar saman af Karli Sigurbjörnssyni, biskup.
Hér má finna glettin orð en þó alvörufull og djúpvitur sem ylja lesandanum um hjartarætur og vekja bros á vör: Örsögur, íhuganir, myndbrot og ljóð, spekiorð og bænir víðs vegar að sem styrkja og næra hugann. Allt eru þetta hlý orð og sterk sem höfundur vill deila með öðrum til að uppörva í trú og efla von. Kímnin er aldrei langt undan, hin óvæntu sjónarhorn sem varpa ljósi yfir það sem máli skiptir í lífinu.
,,Orð í gleði og Fleiri orð í gleði eru bækur sem hægt er að opna hvar sem er, hvenær sem er. Boðskapurinn á við í leik og starfi. Ég les bækurnar fyrir mig, börnin mín og mæli með þeim við alla sem vilja gleði, von og trú." Segir Sigríður Arnardóttir, dagskrárgerðarmaður.
kr. 1.990,-
Flokkar: Hugleiðingabækur, Andleg leiðsögn
Í dag - Hugleiðingar 366 Íslendinga fyrir hvern dag ársins

Hugleiðingar 366 Íslendinga skrifaðar sérstaklega fyrir þessa bók. Þeir deila með lesendum veganesti út í daginn. Þessi bók sýnir þverskurð af íslenskri hugsun um lífið og tilveruna. Hugleiðingarnar eru mjög persónulegar og sýna hvað fólki liggur á hjarta og lýsa því mjög vel hvað fólk setur í forgang í lífinu. Þær eru auðskiljanlegar og uppbyggilegar, hafa sterkar siðferðislegar og trúarlegar tilvísanir og vekja til umhugsunar um það sem skiptir máli, fordómalausar, hlýlegar, nærandi og hressandi. Það teljast vera tíðindi að hátt í fjórða hundrað Íslendinga skrifi hugleiðingar sínar í eina bók. Höfundarnir koma af ýmsum sviðum þjóðlífsins og margir eru landskunnir. Einstök bók ætluð Íslendingum í dagsins önnum.
Verð 3.740 krónur
Flokkar: Hugleiðingabækur
SAMTAL VIÐ SAMTÍMANN

Samtal við samtímann - Nokkur drýli í víngarði Drottins
Nútímamaðurinn býr í heimi sem býður upp á fjölda tækifæra sem leiða til betra lífs ef farið er að með gát. Samhliða þeim og aukinni velsæld blasa við mál sem kalla á svör og ekki síst þau sem eru af siðferðilegum toga. Höfundur ræðir þau í skýru máli og af dirfsku og skarpskyggni. Samtal hans við samtímann er hressilegt og hispurslaust. Mál hans er kjarnyrt og umvafið hlýrri kímni ásamt mannviti hversdagslegrar reynslu. Hann tekur afstöðu þar sem leiðarljósið er einlæg trú og virðing fyrir lífinu. Höfundur ræðir mál sem lítið hefur verið ritað um á íslensku og sum þeirra hafa jafnvel verið hjúpuð feimni eða þögn: Hvað með líffæragjafir? Hvað á að gera við aldraða foreldra? Samkynhneigð og hjónaband? Útlimamissir? Dauði og sorg, getur kímni hjálpað? Geta helgisiðir verið leið til huggunar? Hvernig vinnum við bug á fordómum? Samtal við samtímann vekur til umhugsunar og hvetur til samtals um viðkvæm mál þar sem niðurstaða liggur ekki í augum uppi. Bókin er því kærkomin öllum þeim er láta sig slík mála einhverju varða.
Sr. Sigfinnur Þorleifsson, er sjúkrahúsprestur og kennir sálgæslufræði við guðfræðideild Háskóla Íslands. Skálholtsútgáfan hefur áður gefið út bókina Í nærveru, eftir sama höfund.
Bókin, Samtal við samtímann kostar kr.. 2900,-
Tilboð kr. 1900,-
Flokkar: Spurningar lífsins
Í nærveru

Bókin er góð hjálp öllum þeim sem hlúa vilja að andlegri velferð annarra. Hvað felst í því að hlusta á aðra og skilja hvað þeim liggur á hjarta. Hún bæði leiðbeinir og hvetur til skilnings og hluttekningar til að skilja dýpstu tilfinningar fólks og andlegt ástand þess. Höfundur bókarinn er sjúkrahúsprestur og hefur staðið við hlið fólks og veitt þeim stuðning við sjúkrabeð þess eða ættingja þeirra.
Bókin kostar 2.980,-Flokkar: Spurningar lífsins
Stórt og smátt um bænina

Stórt og smátt um bænina er nýútkomin bók hjá Skálholtsútgáfunni.Skálholtsútgáfan hefur gefið út nokkrar bænabækur, bæði fyrir börn og fullorðna, en áður hefur ekki komið út bók sem fjallar eingöngu um bænina.
Viltu efla og þroska bænalíf þitt? Hvað er bæn? Hvernig biðjum við? Stórt og smátt um bænina er nútímaleg bók sem býður uppá nýjar leiðir til að efla og þroska bænalíf. Bænaæfingar eru í hverjum kafla bókarinnar, margar nýstárlegar en aðrar byggja á gömlum hefðum.
Bæn er ferðalag. Ferðalag til Guðs og um leið er förinni heitið inn í innstu sálarfylgsni okkar. Við könnum ný lönd og nemum. Bænir okkar dýpka og þroskast eftir því sem við sjálf þroskumst og breytumst. Meðal kafla í bókinni má nefna: Bæn og tilfinningar; Bæn og tónlist; Bæn, bragð og ilmur; Bæn og hreyfing. Bókin kostar kr. 2700,-
Tilboð kr. 2000,-
Flokkar: Andleg leiðsögn, Bænabækur fyrir fullorðna
Friður í hjarta - eftir Móður Teresu
Líf sérhvers manns er dýrmætt í augum Guðs. Móðir Teresa helgaði líf sitt því að hjálpa þeim snauðustu allra í fátækrahverfum Kalkútta. Í þessari bók má finna safn ummæla hennar, hugleiðinga og bæna. Þar má skynja þá umhyggju, visku og djúpa frið sem mótaði líf og ævistarf Móður Teresu.
Hvert og eitt okkar hefur sömu möguleika að eignast hlutdeild í friðnum. Mörgum sem vanir eru asa,þar sem allt þarf að ganga hratt fyrir si,g finnst þetta erfitt, en þessi bók getur orðið til hjálpar.
Á dögum rangrar forgangsröðunar á svo mörgum sviðum þörfnumst við þess að vera minnt á hve mikilvæg trúin á Guð er. Og hvílík gleði sprettur af þeirri trú.
Það er einfaldur boðskapur, en mörg okkar fara samt á mis við hann. Allt of oft er trúnni íþyngt af byrðum nútímans. Samt er það trúin sem veitir hverju og einu okkar þann styrk sem við þörfnumst til að yfirvinna veikleikana vegna þess að kærleikur Guðs er þolinmóður. Fyrir trúna fáum við að reyna og sjá að við erum ekki ein andspænis erfiðleikunum.
Bókin fæst í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31 og í öllum helstu bókaverslunum.
Karl Sigurbjörnsson, biskup, þýddi.
Kr. 1.690,-
Flokkar: Um lífið, tilveruna og trúna, Hugleiðingabækur, Andleg leiðsögn
RÚMHELGIR DAGAR - bókin um hversdaginn

Rúmhelgir dagar - Bókin um hversdaginn og trúna.
Þessi bók setur fram vísanir til hins heilaga í í hversdagsleikanum á djúpvitran hátt og glettinn sem styrkja okkur í lífinu. Hér er að finna veganesti í dagsins önn og amstri, örsögur, íhuganir, myndbrot og ljóð, spekiorð og bænir sem styrkja og næra hugann, og benda á návist Guðs, líka í gráma hversdagsins. Dagurinn getur verið ofinn úr björtum þráðum gleði og hamingju eða dökkum þráðum kvíða og depurðar. En hvernig sem hversdagurinn kann að vera þá er alltaf að finna í honum gullinn þráð hins heilaga. KR. 2900,-
Höfundurinn Karl Sigurbjörnsson biskup, hefur áður skrifað tvær bækur um skylt efni , Orð í gleði og Huggun í sorg.
Tilboð 1900,-
Flokkar: Andleg leiðsögn
Orð í gleði
Þessi bók geymir gott veganesti út í dagsins amstur og eril. Flytur glettin orð en þó alvörufull og djúpvitur sem ylja lesanda um hjartarætur og vekja bros á vör. Hér er að finna smellnar örsögur og djúpar íhuganir, sterk myndbrot og ljóð, ódauðleg spekiorð og heitar bænir sem styrkja og næra hugann. Allt eru þetta hlý orð og kröftug sem höfundur vill deila með öðrum til að uppörva í trú og efla von. Sjónarhorn kímninnar er hér í fyrirrúmi og sýnir hvað hún getur verið öflugur farvegur fyrir það sem skiptir mestu máli í lífinu. Karl Sigurbjörnsson biskup tók þessa bók saman.Fimm mínútna Biblían
Einstök bók og ótrúleg! Ein eftirtektarverðasta bók um Biblíuna sem komið hefur út.
Hún gerir efni Biblíunnar aðgengilegt. Hún er ætluð ungu fólki en nýtist öllum aldurshópum.
Í Noregi, Svíþjóð og í Finnlandi er hún víða notuð í fermingarfræðslu.
Efni bókarinnar er skipt niður í stutta kafla, ein blaðsíða fyrir hvern dag ársins. Biblíutexti og hugleiðing fylgir hverjum degi.
kr. 2.280,- (kilja)
Flokkar: Um lífið, tilveruna og trúna, Andleg leiðsögn, Fræðsla, Biblíufræðsla, Fermingarstarf
HVER ER TILGANGURINN svör við spurningum lífsins
Þessi bók segir frá tilgangi lífsins út frá kristnu sjónarhorni og svarar mörgum áleitnum spurningum og vekur aðrar. Spurningum eins og: Hver skapaði Guð? Hvernig veig ég að mér er fyrirgefið?Hvers vegna er heimurinn í sárum? Hvað gerir Guð í þessu? Bókin hefur verið þýdd á 64 tungumál.
Höfundur: Paul Geres 78 bls Leiðbeinandi verð: kr. 1590,-
Andardráttur umhyggjunnar

Erfitt er að tjá það sem hjarta er næst án þess að vera persónuleg. Mikilsvert er þó að reyna það. Dýpstu upplifanir okkar eru almennar, og við verðum að læra að finna okkur sjálf í reynsla annarra. Athyglisvert er hve líkt manneskjurnar tjá sig á öllum öldum, þegar þær reyna að lýsa með orðum því sem aðeins verður sagt í myndum.Þessi bók er ætluð þeim sem takast á við vandamál daglegs lífs.
Bókin kostar 1200 krónur
Flokkar: Hugleiðingabækur
Þankagangur Jóns Gnarr

Þankagangur er bók sem opnar okkur hugarheim nútímamanns sem virðir fyrir sér lífið um leið og hann tekur fullan þátt í því. Mörg hversdagsleg atvik sem við öll þekkjum verða honum tilefni til að setja þau undir sjónarhorn sem er í senn spaugileg og alvarleg.
Kr. 2.680,-
Tilboð 1.900,-
Flokkar: Spurningar lífsins
Augliti til auglitis

Þessi bók mætir konum í dagsins önn og hjálpar þeim að ná tökum á lífi sínu með íhugun og bæn. Hér er einnig að finna almenna umfjöllun og leiðbeiningar um íhugun. Í bókinni eru nítján íhuganir fyir konur í ýmsum aðstæðum lífsins og fjórar samdar út frá frásögnum í Nýja testamentisins.
Bókin kotar 1980 krónur
Flokkar: Hugleiðingabækur
Hvað tekur við þegar ég dey?

Hvað tekur við þegar að ég dey? Hvar eru hinir dánu? Hvað er upprisa? Hvað með þá sem ekki trúa? Er samband milli lifandi fólks og framliðinna staðreynd eða hugarburður? Samrýmist spíritismi og kristin trú? Hvað er endurholdgun? Hvernig býr maður sig undir dauðann? Spurningarnar eru óteljandi en einatt er fátt um svör. Í þessu kveri er leitast við að varpa ljósi á svör kristinnar trúar við þessum og öðrum áleitnum spurningum andspænis ráðgátum dauðans. Bókin kostar 1200 krónur
Tilboð 400,-Flokkar: Spurningar lífsins, Sorg og sorgarviðbrögð
ÆÐRULEYSI KJARKUR VIT - Orð til uppörvunar á erfiðum tímum

Þetta bókarkorn geymir huggunarorð, bænir og örsögur af ýmsu tagi sem varpa ljósi á æðruleysisbænina.
Æðruleysisbænin er mörgum kunn og kær. Fólk sem unnið hefur með tólf spora kerfið, t.d. innan AA samtkanna og á námskeiðum í kirkjum undir heitinu Tólf sporin - andlegt ferðalag, hefur notið þeirrar gæfu að hafa tileinkað sér æðruleysisbænina.
En æðruleysisbænin á erindi til allra í atvikum daganna.
Hún hefur reynst hughreysting og haldreipi þegar tekist er á við ósigra og erfiðleika. En hún er líka styrkur og leiðsögn á daglegri för í margbreytilegum aðstæðum.
kr. 790,-
Flokkar: Andleg leiðsögn
Á leið til Jerúsalem

Úr erli daglegs lífs er nútímamaðurinn leiddur í djúpa kyrrð á helgum slóðum. Skyndilega er hann í för með fólki sem fylgir meistaranum frá Nasaret, en ferðinni er heitið til borgarinnar Jerúsalem. Á leiðinni suður landið gerist margt, nútímamaðurinn stendur við hlið höfundar og hlýðir á ódauðleg orð og verður vitni að máttarverkum. ISBN 9979-765-29-1 - 39 bls. -
Bókin kostar 1.350 krónur.
Tilboð 600 krónur
Flokkar: Hugleiðingabækur
Ákall úr djúpinu

Margir þrá kyrrð og frið á hraðfara öld nútímans. Ef til vill heufur þessi þrá aldrei verið eins djúpstæð og nú á dögum. Þessi bók fjallar um margar hliðar kristinnar íhugunar og djúphygli. Bókin mætir annasömum heimi nútímans og viðleitni mannsins að ná góðri einbeitingu við íhugun sína.
Kr. 2.420,-
Flokkar: Andleg leiðsögn
Ljós á dimmum degi - bænir í mótlæti hversdagsins

Öll þurfum við á styrk að halda þegar mótlæti hversdagsins knýr dyra. Á slíkum stundum getur verið erfitt að orða hugsanir sínar og koma þeim í réttan farveg. Hugsanir okkar geta verið fálmkenndar, fljótfærnislegar eða ósveigjanlegar. Þær geta líka fyllt okkur vanmætti eða eflt baráttuþrekið um stundarsakir. Bókin Ljós á dimmum degi getur stutt þig á lífsgöngu þinni þegar öll sund virðast lokuð. Hún geymir nútímalegar bænir í orðastað þíns sem þú getur beðið, lesið og íhugað, þegar mótlæti hversdagsins er nánast orðið óbærilegt.
HÖFUNDUR: Paul Geres 56 bls - Leiðbeinandi verð: kr. 1490,-
Tilboð: Kr. 500,-
Flokkar: Spurningar lífsins, Bænabækur fyrir fullorðna
Að vera kristinn

Bók fyrir alla sem hafa spurningar um það að vera Kristinn.
Bókin kostar 500 krónur
Tilboð 400,-
Flokkar: Spurningar lífsins
Á torgi himinsins

í þessari bók eru 43 hugvekjur sem flestar eru útleggingar á textum kirkjuársins. Þjrú meginþemu eru í bókinni: Rökhyggja og trú, kristin dulúð og evangelískur átrúnaður. Hugvekjurnar tak á mörgum þáttum mannlífsins og kristinnar trúar og eru holl og góð lesning hverjum manni. Þær eru skrifaðar á meitluðu máli, fagurri og kjarnyrtri íslensku sem höfundurinn var þekktur fyrir.
Bókin kostar 1500 krónur
Flokkar: Hugleiðingabækur
Eigi stjörnum ofar - Sálmar og ljóð Sigurbjörns Einarssonar, biskups.

Sigurbjörn Einarsson er eitt mesta sálmaskáld íslensku þjóðarinnar á síðari tímum. Sálmar hans og bænir bera uppi helgihald kirkjunnar og trúarlíf einstaklinga hér á Íslandi, og veita leiðsögn og huggun trúar og vonar.
Bókin geymir heildarsafn sálma hans og ljóða allt til hinstu stundar.
Ritstjórn: Einar Sigurbjörnsson prófessor, sonur dr. Sigurbjörns.
Bókin kostar kr. 3590,- og fæst í Kirkjuhúsinu og öllum helstu bókaverslunum landsins.
Tilboð kr. 2.500,-
Flokkar: Andleg leiðsögn, Bænabækur fyrir fullorðna
Englar hér og þar, englar alls staðar

Smásögur um engla. Uppspretta bókarinnar er Biblían sjálf. Í þessari bók eru englarnir hver öðrum ólíkir. Sumir eru stórir aðrir hressir og enn aðrir eru hörkutól. Eitt eiga þeir þó sameiginlegt, að vera sendiboðar Guðs, þjónar Guðs. Sögurnar í bókinni eru lifandi og spennandi og að lestri loknum lítur lesandinn í kringum sig eftir englum... Þessi bók var valin beta barnabók á Bretlandi árið 1994 en hún hentar öllum unnendum smásagna og engla.
Bókin kostar 1980 krónur
Tilboð 600 krónur
Flokkar: Hugleiðingabækur, Barnabækur af ýmsum toga
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi - smábók

Orð um kærleikann - stuttar íhuganir og spekiorð.
kr. 790,-
Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika væri ég hljómandi málmur eða kvellandi bjalla.... (Orð Biblíunnar)
Flokkar: Um lífið, tilveruna og trúna, Andleg leiðsögn
Mig mun ekkert bresta

Mig mun ekkert bresta - bók um sorg og von eftir Jónu Lísu Þorsteinsdóttur, prest við Akureyrarkirkju. Þetta er bók sem styrkir öll þau sem missa sína nánustu og hjálpar þeim að takast á við sorgina af raunsæi og æðruleysi. Hughreystandi frásögn, ljóðræn og vonarrík, þar sem horfst er í augu við sorgina sem heimsækir okkur öll einhvern tíma.
Bókin kostar 2990 krónur
Flokkar: Andleg leiðsögn, Sorg og sorgarviðbrögð
Fjórar spennandi smábækur

Bækurnar Faðir vor, Drottinn er minn hirðir, Verið ekki áhyggjufull og Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi geyma vekjandi og snjallar tilvitnanir frá þekktu fólki sem óþekktu tengdar textum Biblíunnar þar sem þeir eru settir undir nútímalegt og ferskt sjónarhorn. Bækur sem hentar fólki á öllum aldri. ISBN 9979-765-31-3 - Verð 790 kr. hver bók
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi kostar 790 krónur
Faðir vor, Drottinn er minn hirðir, Verið ekki áhyggjufull eru á tilboði 300 krónur
Flokkar: Hugleiðingabækur
ÞJÓÐGILDIN - GUNNAR HERSVEINN

BÓKIN ÞJÓÐGILDIN EFTIR GUNNAR HERSVEIN ER KOMIN ÚT.
Hvernig samfélag viljum við vera?
Hvaða gildi viljum við rækta?
Í bókinni Þjóðgildin er fjallað um gildin sem viska fjöldans valdi á Þjóðfundinum 14. nóvember 2009. Heiðarleiki, jafnrétti, virðing, réttlæti, kærleikur. ábyrgð, frelsi, sjálfbærni, lýðræði, fjölskyldan, jöfnuður og traust eru gildin sem efla þarf á næstu árum. Í bókinni fjallar Gunnar Hersveinn um hvert og eitt gildi og knýr lesendur til að taka þátt í því að móta samfélagið.
Ósk þjóðarinnar býr í þjóðgildunum sem valin voru á Þjóðfundinum. Höfundur bókarinnar leitast við að orða þessa ósk og greina mörkin sem ekki má fara yfir. Þjóðgildin eru sprottin af visku þjóðarinnar; Þjóðgildin eru ekki fyrir aðra, heldur hvert og eitt okkar.
Í bókinni er fjallað um hvernig efla megi lýðræði og jöfnuð, samábyrgð og frelsi á nýjan leik í þágu almennings. Hvernig getur Ísland verið öðrum löndum góð og traust fyrirmynd? Ef samfélag gefur öðrum þjóðum af gnægð sinni, þekkingu og hugviti með það að markmiði að bæta heiminn – batnar það sjálft.
Gunnar Hersveinn er höfundur bókanna Gæfuspor – gildin í lífinu , og Orðspor – gildin í samfélaginu (JPV útgáfa) sem hafa sett umtalsvert mark á þjóðfélagsumræðuna, og hann hefur fengið viðurkenningar fyrir vönduð skrif sín um manngildi.
Bókin kostar kr. 2690,- og henni fylgir veggspjald um Þjóðgildin, sem útskýrir þjóðgildin. Fallega myndskreytt sem jurt sem vex upp úr grasrótinni.
Flokkar: Spurningar lífsins
Föstu- og páskabókin

Í þessu kveri er að finna ýmislegt efni til notkunar um föstu, í dymbilviku og um páska. Má þar nefna píslasögu Krists út frá guðspjöllunum fjórum en einnig til flutnings fyrir leshópa. Litanían er hér í nýrri þýðungu, einnig form fyrir páskavöku og upprisufrásögnin til flutnings fyrir leshópa. Bókin hentar áhugasömum einstaklingum en einnig til notkunar í kirkjustarfi og við helgihald í kirkjunnar á föstu og páskum.
Bókin kostar 1400 krónur.
Flokkar: Hugleiðingabækur, Páskaefni - Jólaefni, Kristin trú
HVAÐ Í VERÖLDINNI GERIR MAÐUR ÞEGAR EINHVER DEYR?

Eitt það erfiðasta sem getur komið fyrir er þegar einhver sem þér þykir vænt um deyr. Allur heimurinn umturnast.
Hvað í veröldinni gerir maður?
Trevor Romain veit það því hann reyndi það á sjálfum sér þegar pabbi hans dó. Þessi bók getur hjálpað þér í gegnum erfiðan tíma. Á einfaldan og heiðarlegan hátt svarar Trevor spurningum sem þú gætir verið að velta fyrir þér: „Af hverju þarf fólk að deyja?“ „Var þetta mér að kenna?“ „Hvað verður um líkama þess sem dó?“ „Hvernig get ég kvatt?“ Hann lýsir öllum þessum yfirþyrmandi og ruglingslegu tilfinningum sem þú gætir verið að upplifa og stingur upp á leiðum sem geta hjálpað þér til að líða betur.
Lestu það sem Trevor hefur við þig að segja. Skoðaðu myndirnar hans. Hann skilur hvað þú ert að ganga í gegn um og hann getur hjálpað.
Trevor Romain hefur skrifað og myndskreytt meira en þrjátíu barna- og unglingabækur, meðal annars bækurnar „How to Do Homework Without Throwing Up (Að sinna heimanáminu án þess að gubba)“ „Bullies Are a Pain in the Brain (Hrekkjusvín eru svínslega svekkjandi)“ og „Cliques, Phonies & Other Baloney (Klíkur, kjánar og annað kjaftæði)“
Verð kr. 1280,-
Tilboð kr. 980,-
Flokkar: Spurningar lífsins, Börn og foreldrar, Sorg og sorgarviðbrögð
HVAÐ ER KRISTIN TRÚ?

Bókin Hvað er kristin trú? gefur mörg áhugaverð svör og kunna sum hver að ýta hressilega við lesandanum. Höfundur kynnir í stuttu máli sögu kristinnar trúar, siðfræði hennar og mannskilning, og ræðir umdeild mál sem snúast um kynferði, kynlíf og stjórnmál. Þetta er ekki hefðbundin útlegging á texta Biblíunnar, kirkjusögu eða trúfræði, heldur miklu fremur bók sem skorar á kristna trú sem og önnur trúarbrögð að horfast í augu við sögu sína og samtíð. Og sú áskorun kemur úr herbúðum þeirra sjálfra og frá öðrum. Hvernig á kristin trú að bregðast við öðrum trúarbrögðum og annarri menningu?Halvor Moxnes (f. 1944) er prófessor við guðfræðideild háskólans í Ósló. Hreinn S. Hákonarson þýddi.
Bókin kostar Kr. 2.980
Flokkar: Spurningar lífsins, Biblíufræðsla, Kristin trú
Speki Ágústínusar kirkjuföður

Spekibækurnar eru hugsaðar sem hjálp við íhugun og skiptast hver og ein bók í þrjátíu stutta kafla þar sem hver kafli gefur lesandanumandlegt nesti til íhugunar fyrir hvern dag mánaðarins.
Í þessari bók eru sýnishorn úr ritum Ágústínusar sem hefur mótað og frjóvgað kristna hugsun og trúarlíf flestum fremur. Ágústínus hefur haft meiri áhrif á menningu Vesturlanda en flestir kristnir hugsuðir aðrir. Fáar bækur hafa verið meira lesnar en Játningar hans, eina rit hans sem hefur að hluta verið þýtt á íslensku. Bókin kostar 790 krónur
Tilboð 400,-
Flokkar: Andleg leiðsögn
Til íhugunar - Dr. Sigurbjörn Einarsson á DVD

DVD diskur með þrettán hugleiðingum fluttum af dr. Sigurbirni Einarssyni, biskup, teknar upp sumarið 1996.
Einnig er að finna eina jólaprédikun, sem hann flutti í sjónvarpssal.
kr. 2000,-
Flokkar: Hugleiðingabækur, Kristin trú
Speki Davíðssálma

Davíðssálmar hafa um aldaraðir verið mönnum einna kærastir allra rita í Biblíunni. Allt líf mannsins er þeim efni til íhugunar. Sterk von og einlægt traust endurómar í 23. sálmi Davíðs, sem er kunnastur þeirra. Margir sálmanna sýna djúpa tilbeiðslu mannsins og lotningu fyrir því sem heilagt er. Enn aðrir draga fram örvæntingu mannsins andspænist ýmsum ógnum og hremmingum lífsins.
Bókin kostar 790 krónur
Tilboð 400,-
Flokkar: Andleg leiðsögn
TRÚ OG TILGANGUR LÍFSINS - HVER ERU SVÖR KRISTINNAR TRÚAR?

Hvað viltu, veröld? og Leit og svör er heiti pistla eftir Sigurbjörn Einarsson, biskup sem birtust í Morgunblaðinu, vikulega á þriggja ára tímabili, árin 2007-2009. Pistlarnir vöktu mikla athygli. Hér birtast þeir á bók ásamt fleira efni, þar á meðal hugleiðingum hans um ellina. Einnig má lesa hér síðustu prédikun hans, sem hann flutti á Reykholtshátíð 2007. Verð kr. 3490,-
Flokkar: Spurningar lífsins, Kristin trú
Speki eyðimerkurfeðranna
Eyðimerkurfeðurnir voru menn sem sest höfðu að í eyðimörkinni í Egyptalandi til að leita einveru og kyrrðar. ,,Mæl þú orð" var gjarna ósk þeirra við þá sem leituðu þeirra um langan veg. Og vegna þess hver orðfáir þeir voru varð orðið næstum eins og saramenti, rödd Guðs og svar við innstu hjartans ósk. Í þessari bók eru tekin saman spekiorð sem frá eyðimerkurfeðrunum eru komin og endurspegla trú sem var iðkuð í auðmýkt og réttlæti, en stöðugri baráttu. Bókin kostar 790 krónurFlokkar: Um lífið, tilveruna og trúna, Andleg leiðsögn
Speki Jesú Krists

Þessi bók geymir mörg spakmæli Jesú Krists og mörg önnur minnisstæð orð sem frá honum eru komin og lesa má í guðspjöllunum. Boðskapur hans er djúpur og kærleiksrík leiðsögn á vegi lífsins og hverjum manni óþrjótandi íhugunarefni.
Bókin kostar 790 krónur
Flokkar: Andleg leiðsögn
Spekisögur frá ýmsum löndum
Fimmtán spekisögur sem hjálpa okkur að læra hvert af öðru og búa til betri heim, friðsælan og réttlátan.
Bók um speki og visku hana börnum og fullorðnum.
Sögurnar eru frá Gana, Jamaíka, Galíleu, Grikklandi, Arabíu, Indlandi, Ítalíu, Afganistan, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Rússlandi.
Ríkulega myndskreytt bók.
Verð kr. 1890,-
Tilboð kr. 990,-
Flokkar: Andleg leiðsögn, Barna- og unglingastarf, Barnabækur af ýmsum toga
Verið ekki áhyggjufull - smábók

Orð um áhyggjur út frá Biblíutextum - spekiorð og stuttar íhuganir til umhugsunar.
Tilboð kr. 300,-
Flokkar: Andleg leiðsögn
Drottinn er minn hirðir - smábók

Orð um 23. Davíðssálm í Biblíunni - spekiorð og stuttar hugleiðingar.
Tilboð kr. 300,-
Flokkar: Andleg leiðsögn
Þú sem ert á himnum - smábók

Orð um Faðir vor - bænina, spekiorð og stuttar hugleiðingar.
Tilboð kr. 300
Flokkar: Andleg leiðsögn
GUÐ, HVERS VEGNA? ANDLEGT FERÐALAG ...

Guð hvers vegna. Nýútkomin bók um trúarlega iðkun
Í bókinni eru gagnlegir inngangskaflar um bænalíf, biblíulestur og aðra trúarlega iðkun, hvort sem tekst að verja fimmtán mínútum eða aðeins tveim mínútum á dag í andlega iðkun.Síðari hluti bókarinnar er 40 daga andlegt ferðalag með ritningarversi, hugleiðingu og bæn ásamt hagnýtum leiðbeiningum. Hér eru einnig leiðbeiningar fyrir hópa fólks sem vill vinna saman með efni bókarinnar. Vigfús Ingvar Ingvarsson, þýddi. Verð kr 2700,-
Tilboð 2.000,-
Flokkar: Andleg leiðsögn, Tólf sporin andlegt ferðalag
ÞJÓÐGILDIN - GUNNAR HERSVEINN

ÞJÓÐGILDIN EFTIR GUNNAR HERSVEIN
www.þjóðgildin.is
Hvernig samfélag viljum við vera?
Hvaða gildi viljum við rækta?
Í bókinni Þjóðgildin er fjallað um gildin sem viska fjöldans valdi á Þjóðfundinum 14. nóvember 2009. Heiðarleiki, jafnrétti, virðing, réttlæti, kærleikur. ábyrgð, frelsi, sjálfbærni, lýðræði, fjölskyldan, jöfnuður og traust eru gildin sem efla þarf á næstu árum. Í bókinni fjallar Gunnar Hersveinn um hvert og eitt gildi og knýr lesendur til að taka þátt í því að móta samfélagið.
Gunnar Hersveinn er höfundur bókanna Gæfuspor – gildin í lífinu , og Orðspor – gildin í samfélaginu (JPV útgáfa) sem hafa sett umtalsvert mark á þjóðfélagsumræðuna, og hann hefur fengið viðurkenningar fyrir vönduð skrif sín um manngildi.
Bókin kostar kr. 2690,- og henni fylgir veggspjald um Þjóðgildin, sem útskýrir þjóðgildin. Fallega myndskreytt sem jurt sem vex upp úr grasrótinni.
Tilboð 990,- í Kirkjuhúsinu,
Bókin fæst einnig í Pennanum, Eymundsson og víðar!
Flokkar: Andleg leiðsögn, Spurningar lífsins
MÍN ÞÚ LEITAR, GUÐ - Valin orð til uppbyggingar og uppörvunar.

Bjarni Árnason, traustur vinur Sigurbjörns Einarssonar, biskups, og mikill unnandi ritverka hans, hefur lengi sótt styrk í orð hans, bæði til uppbyggingar, uppörvunar og endurnýjunar. Til þess að aðrir gætu gert hið sama, valdi Bjarni orð úr ritum Sigurbjörns.
Bókin kostar Kr. 2.980
Flokkar: Andleg leiðsögn, Guðfræði, Kristin trú
FJÁRSJÓÐUR - 84 KORT MEÐ BIBLÍUVERSUM OG BÆNUM

Hvar sem FJÁRSJÓÐUR þinn er þar mun og hjarta þitt vera
Bænir og biblíuvers í önnum hversdagsins Þessi fjársjóður geymir 84 kort – öðrum megin er biblíuvers sem auðvelt er að tileinka sér, hinum megin er bæn.
BÆN: Guð. Of oft gleymi ég mér og tek ógætilega til orða þegar rætt er um fólk sem mér fellur ekki við. Hjálpa mér að gæta tungu minnar svo hún skaði hvorki mig né aðra.
RITNINGARVERS: Talið ekki illa hvert um annað, systkin. (Jakobsbréfið 4.11)
Fæst í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31 sími 528 4200 - kr. 2500,-
Flokkar: Andleg leiðsögn
KVÖLDBÆNAFJÁRSJÓÐUR

BÆNIR OG BIBLÍUVERS AÐ KVÖLDI DAGS
Þessi fjársjóður geymir 84 kort – öðrum megin er biblíuvers sem auðvelt er að tileinka sér, hinum megin er bæn. Hér er dæmi;
RITNINGARVERS;
Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning.
Matteusarguðspjall 6.34
BÆN:
Guð, vertu nálægur þegar við erum hrædd.
Hjálpaðu okkur að lifa í augnablikinu og um leið í
trausti til þín sem ert eilífur og alltaf nálægur.
Hægt er að lesa eitt á kvöldi í 12 vikur eða búa til sína eigin aðferð. Fæst í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31 sími 528 4200 - kr. 2500,-
Flokkar: Andleg leiðsögn



