Tónlistarbækur
GUÐ, Í ÞINNI HENDI

NÝ SÖNGBÓK FYRIR ÆSKULÝÐSSTARF KIRKJUNNAR ER KOMIN ÚT
Safnað hefur verið saman í einkar fallega bók, 130 söngvum og sálmum sem hafa verið sungnir í æskulýðsstarfi kirkjunnar síðustu árin, sem og nýrri sálmum og söngvum víða að. Mikil vinna var lögð í lagaval þar sem lögð var áhersla á fjölbreytta söngva sem henta ungu fólki. Bókin er ætluð til notkunar í unglingastarfi kirkjunnar en nýtist fyrir mun breiðari aldurshóp við ólíkar aðstæður.Hverju lagi fylgja nótur og gítargrip sem er ætlað til að auðvelda þátttakendum í æskulýðsstarfinu að nota bókina og auka áhuga á tónlist og söng Þessi bók er unnin á vegum ÆSKR OG ÆSKÞ í samvinnu við söngmálastjóra. Það er von þeirra sem unnu að bókinni að hún eigi eftir að efla söng í æskulýðsstarfinu þar sem söngurinn er mikilvægur þáttur í helgihaldi æskulýðsstarfsins og góðir textar gott veganesti út í lífið.
Verð bókarinnar er kr. 2680,- ef keypt eru 10 eintök eða fleiri kostar bókin kr. 2000,-.
Flokkar: Barna- og unglingastarf, Tónlistarbækur
Söngvasveigur 15 - HEYR ÞÚ OSS HIMNUM Á
15. BÓKIN Í BÓKARÖÐINNI SÖNGVASVEIGUR FYRIR BARNAKÓRA, BLANDAÐA KÓRA OG KVENNAKÓRA - 64 KIRKJULEGIR SÖNGVAR FYRIR BLANDAÐA KÓRA
Verð kr. 2400,-
Flokkar: Tónlistarbækur
Hátíð fer að höndum ein - Söngvasveigur 1

40 aðventu og jólasöngvar fyrir sópran og altraddir (kvennakóra og barnakóra). Margrét Bóasdóttir og Þórunn Björnsdóttir tóku saman.
Bókin kostar 1490 krónur
Flokkar: Tónlistarbækur
Ég vil elska mitt land - Söngvasveigur 2

33 ættjarðarög. Raddsett fyrir sópran og altraddir (kvennakórar og barnakórar). Margrét Bóasdóttir og Glúmur Gylfason tóku saman.
Bókin kostar 1800 krónur
Flokkar: Tónlistarbækur
Jólahelgileikir fyrir barnakór og píanó - Söngvasveigur 3

í þessari bók eru þrír helgileikir fyrir barnakóra og píanó. Þeir eru; Fæðing frelsarans, En það bar til og Hljóðu jólaklukkurnar. Undirleikshefti fást. Margrét Bóasdóttir tók saman.
Bókin kostar 800,-
Undirleikur kostar 850,-
Flokkar: Tónlistarbækur
Finnsk og pólsk þjóðlög og Söngvaseiður - Söngvasveigur 4

3 sönglagasyrpur fyrir barnakóra og kvennakóra. Hægt er að fá undirleiksnótur. Margrét Bóasdóttir tók saman.
Bókin kostar 850 krónur
Flokkar: Tónlistarbækur
Út um græna grundu - Söngvasveigur 5

55 íslensk og erlend lög, raddsett fyrir barna- og kvennakóra. Lög við allra hæfi, jafnt byrjendur og þeirra sem eru lengra á veg komin. Við mörg lög er að finna píanóundirleik eða hljóma til stuðnings. Veraldleg lög. Þórunn Björnsdóttir og Egill R. Friðleifsson tóku saman.
Bókin kostar 1800 krónur
Flokkar: Tónlistarbækur
Sálmar um lífið og ljósið - Söngvasveigur 6

Samið að beiðni Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju 1995 fyrir barnakóra í Reykjavíkurprófastsdæmum. Kristján Valur Ingólfsson og Hjálmar H. Ragnarsson tóku saman.
Bókin kostar 1800 krónur
Flokkar: Tónlistarbækur
Dýrð vald virðing - Söngvasveigur 8

50 Kirkjulegir söngvar fyrir blandaða kóra , Margrét Bóasdóttir og Edda Möller tóku saman.
Bókin kostar 1800 krónur
Flokkar: Tónlistarbækur
Te deum - Söngvasveigur 9

50 kirkjulegir söngvar er hæfa hinum ýmsu trúarlegu athöfnum svo sem skýrn og brúðkaupum, og sálma sem tilheyra hátíðum kirkjuársins. Einnig fjölmargir lofsöngvar og kórverk eftir íslenska og erlenda höfunda, allt frá keðjusöngvum og léttum tvíröddunum til erfiðari kórverka. Bókn hefur að geyma margar klassískar söngperlur en ennig ný kórverk og raddsetningar sem gerðar voru sérstaklega fyrir þessa útgáfu. Guðfinna Ólafsdóttir, Jón Stefánsson og Þórunn Björnsdóttir tóku saman.
Bókin kostar 1800,-
Flokkar: Tónlistarbækur
Yfir fannhvíta jörð Söngvasveigur 10

30 aðventu- og jólasöngvar fyrir kvennakóra. Lögin eru ýmist 3ja eða 4ra radda. Fjölbreytt lög allt frá íslenskum þjóðlögum til íslenskra og erlendra sígildra dægurlaga. Trúarleg og veraldleg lög. Hægt er að kaupa undirleikshefti fyrir píanó með þessari bók.
Bókin kostar 1800 krónur Undirleikshefti kostar 1000 krónur
Flokkar: Tónlistarbækur
Sé Drottni dýrð - Söngvasveigur 11

Jólasöngvar fyrir blandaða kóra. Efni þessarar bókar hentar öllum stærðum og gerðum af blönduðum kórum. Útsetningarnar eru flestar fjórradda.
Bókin kostar 1800 krónur
Flokkar: Tónlistarbækur
Gott er að lofa Drottinn - Söngvasveigur 12

42 kirkjusöngvar fyrir barna kóra. Henta vel til einradda söngs með fallegum undirleik. Mörgum laganna fyrlgir yfirrödd eða viðbótarhljóðfæri. Helgisiðanefnd var með í vali á söngvum fyrir helgihald kirkjuársins og getur bókin því stuðlað að fjölbreyttari þáttöku kóranna í helgihaldi sinnar kikju. Hægt er að fá stjórnendahefti og einnig er hægt að fá hljóðfæraraddir við 16lög úr bókinni. Margrét Bóasdóttir og Gróa Hreinsdóttir tóku saman.
Söngbókin kostar 1490krónur strjórnendahefti kostar 3000 krónur Hljóðfæraraddir kosta 1000 krónur
Flokkar: Tónlistarbækur
Heyr söngvanna hljóm - Söngvasveigur 13

Í bókinni eru rúmlega 50 lofgjörðarsálmar fyrir blandaða kóra. Það er þeim öllum ameiginlegt a þeir eru frekar auðsungnir og á færi allra kóra. Hér má finna þekkta sálma í nýjum útsetningum, afríkanska og suður ameríska sálma og svo framvegis. Þessi bók er tilvalin fyrir ýmsan tónlistarflutning , við guðsþjónustur og kvöldvökur. Þessi bók hentar öllum kórum í leit að nýjum og spennandi útsetningum á eldra og nýju efni. Aðlheiður Þorsteinsdóttir, Guðrún Finnbjarnardóttir, Gunnar Gunnarsson og Örn Arnarson tóku saman.
Bókin kostar 1800 krónur
Flokkar: Tónlistarbækur
Við hátíð skulum halda - Söngvasveigur 14

25 aðventu og jólasöngvar fyrir barna og kvennakóra. Lögin eru ýmist einradda eða fjölradda, með eða án undirleiks og nokkur með notkun viðbótarhljóðfæra. Margrét Bóasdóttir og Gróa Hreinsdótir tóku saman.
Bókin kostar 1490,-
Flokkar: Tónlistarbækur
Brauð og rósir

Brauð og rósir er fyrsta sönghefti Kvennakirkjunnar. Heftið inniheldur 16 frumorta texta íslenskra kvenna við lög úr ýmsum áttum í einföldum útsetningum fyrir rödd og píanó. Textahöfundar eru þær Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Bjargey Arnórsdóttir, Eygló Eyjólfsdóttir, Kristjana Jónsdóttir og Sigríður Magnúsdóttir. Fjögur þessara laga er að finna í 13. söngvasveigsbók Skálholtsútgáfunnar sem nefnist Heyr söngvanna hljóm en í henni eru lögin útsett fyrir blandaða kóra. Guðrún Björnsdóttir myndskreytti bókina.
Verð 1500 krónur.
Flokkar: Tónlistarbækur, Sálmabækur
SÁLMAR Á NÝRRI ÖLD - SÖNGVASVEIGUR 16

Sálmar á nýrri öld geymir 26 nýja sálma eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Sigurð Flosason í útsetningum fyrir blandaða kóra. Bókin er jafnfram uppsett sem ljóðabók.
Upphaf þessa nýstárlega verkefnis má rekja til þess að Sigurður samdi lag við ljóð sem hann fékk á jólakorti frá Aðalsteini. Í framhaldinu þótti þeim freistandi að takast á við trúarleg efni og lét afraksturinn ekki á sér standa.
Efnistök þeirra félaga eru fjölbreytt, allt frá því að vera einföld ljóð og lög sem henta vel til safnaðarsöngs í kirkjum til óhefðbundnari stólversa og kórsöngva. Meðal efnis eru jólasálmar, barnasálmar, lofgjörð til náttúrunnar, páskasálmur og sálmar sem henta við skírn, fermingu og giftingu. Nýjan útfararsálm er einnig að finna í þessu safni, svo segja má að það spanni vítt svið og sé notendavænt.
Það er fátítt að leikmenn taki sig til og semji efni af þessum toga, að minnsta kosti í þeim mæli sem hér um ræðir.
Verð kr. 1590,- en 1250,- ef keyptar eru 10 eintök eða fleiri fyrir kórmeðlimi.
Flokkar: Tónlistarbækur



