Barnabækur af ýmsum toga
DVD DAGINN Í DAG - SUNNUDAGASKÓLINN HEIM

Á disknum eru fjórir vandaðir þættir sem miðla sígildum boðskap kristinnar trúar á nýjan og ferskan hátt.
Hafdís og Klemmi eru hugmyndaríkir og framtakssamir krakkar sem láta hendur standa fram úr ermum og eru sífellt að lenda í ævintýrum.
Þau halda kökubasar, afmælisveislu, safna servéttum og lenda meðal annars í stórum vandræðum í talstöðvaleik.
Áður en þau halda í sunnudagaskólann horfa þau á brúðuþáttinn “Nebbnilega” sem tekur óvænta stefnu.Tuttugu sunnudagaskólalög og barnasálmar og fjórar dæmisögur Jesú sagðar á skemmtilegan máta og kallast á við fjörleg ævintýri Hafdísar og Klemma.Hröð og spennandi atburðarrás, gaman og gleði í bland við uppbyggilegt veganesti.
fæst í verslunum um allt land og í Kirkjuhúsinu sími 5284200 og kostar þar kr. 2490,-
Flokkar: Börn og foreldrar, Barnabækur af ýmsum toga
Spekisögur frá ýmsum löndum
Fimmtán spekisögur sem hjálpa okkur að læra hvert af öðru og búa til betri heim, friðsælan og réttlátan.
Bók um speki og visku hana börnum og fullorðnum.
Sögurnar eru frá Gana, Jamaíka, Galíleu, Grikklandi, Arabíu, Indlandi, Ítalíu, Afganistan, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Rússlandi.
Ríkulega myndskreytt bók.
Verð kr. 1890,-
Tilboð kr. 990,-
Flokkar: Andleg leiðsögn, Barna- og unglingastarf, Barnabækur af ýmsum toga
LITLA BÓKIN UM GUÐ

Lítil bók handa yngri börnum sem geymir vangaveltur um Guð. Segir frá Guði skaparanum og kærleika hans. Bók sem lagt getur grunn að samtali barna og fullorðinna um Guð.
Þessi bók hefur vakið mikla athygli.
kr. 990,-
LITLA BÓKIN UM JESÚ
Lítil bók sem geymir mikinn fróðleik handa yngri börnum. Saga Jesú rakin á einfaldan og auðskilin hátt. Saga sem vekur margar spurningar og kallar á mörg svör.
Tilvalin til að lesa fyrir börn.
Fallega myndskreytt bók.
kr. 990,-
Flokkar: Barna- og unglingastarf, Barnabækur, Barnabiblíur og sögur úr Biblíunni, Barnabækur af ýmsum toga
LITLA BÓKIN UM BIBLÍUNA

Lítil bók um stóra bók. Í henni er sagt frá tilurð Biblíunnar á einfaldan og skýran hátt svo börnin skilja. Svarar mörgum spurningum sem brenna á börnum þegar rætt er um Biblíuna og þýðingu hennar fyrir trúarlífið.
Bókin kostar 990 krónur
LITLA BÓKIN UM BÆNINA

Lítil bók sem fjallar um bænir og bænalíf. Góður stuðningur fyrir þau sem vilja biðja með börnum og ræða um bænir við börn. Bók sem leggur hornstein að hollu bænalífi barna.
Fallega myndskreytt bók.
kr. 990,-
Nananabúbú - Sagan af Malla montrass og Lotta Skotta og frekjudósirnar

Bækurnar um Malla montrass og Lottu skottu og frekjudósirnar eru komnar út
Malli montrass er montnasta vera í öllum heiminum! Hann á montprik sem hann sveiflar til og frá. Töfrar montpriksins hafa þau áhrif á fólk að það fer að keppast við að monta sig.
Hér koma nokkur dæmi:,,Mamma mín er miklu fljótari að hlaupa en mamma þín!” ,,Ég er búinn að fara 300 sinnum til útlanda! En þú?”,,Veistu þetta ekki? Ég veit allt!” ,,Ég er sko búin að missa fimm tennur!”
En dag nokkurn gerast undur og stórmerki!
Í gegnum söguna hans Malla átta börnin sig smátt á smátt á því hvað hegðun eins og mont er óþægileg og hvað það er miklu skemmtilegra og vingjarnlegra að hrósa öðrum.
Lotta skotta finnur tvær frekjudósir og setur þær í töskuna sína. Því hefði hún betur átt að sleppa því frekjudósir hafa skelfileg áhrif á hvern þann sem þær koma nálægt. Þær fylla fólk af hræðilegri frekju. Hér koma nokkur dæmi:,,Ef ég fæ ekki það sem ég vil GRENJA ÉG BARA ÞANGAÐ TIL ÉG FÆ ÞAÐ!” ,,Ég hjálpa ekki til á heimilinu nema ég fái GULL í staðinn!” ,,Ég ÆTLA að láta mömmu GEFA MÉR TÖLVU!” ,,Mér er alveg sama hvað þú segir- ég ætla samt!!!
Pabbi og mamma hennar Lottu skottu átta sig fljótt á því hvað er í gangi og þegar Lotta fær öflugt frekjukast úti í búð, taka þau til sinna ráða!
Bækurnar um Malla montrass og Lottu skottu og frekjudósirnar eru fjörlegar og fyndnar og ómissandi hjálparhellur í barnauppeldinu! Þær hjálpa börnum á léttan og spaugilegan hátt að breyta viðhorfum sínum til hegðunar.
Bækurnar henta 3-10 ára börnum en eru einnig holl lesning foreldrum og börnum á öllum aldri.
Skálholtsútgáfan, útgáfufélag Þjóðkirkjunnar, gefur bækurnar út.
Sögurnar eru eftir Elínu Elísabetu Jóhannsdóttur en myndir og hönnun eru eftir Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur.
Hvor bók fyrir sig kostar kr. 1690 og fást þær í Kirkjuhúsinu og öllum helstu bókaverslunum.
Tilboð. 900,-
Að kveðja í síðasta sinn
Þessi bók fjallar um að kveðja þá sem okkur þykir vænst um. Oft er það auðvelt en stundum líka erfitt. Þessi bók hjálpar okkur til að halda í vonina þegar við kveðjum fólk í síðasta sinn. Bók til að lesa fyrir börn. Höfundur: Lois Rock Myndskreytingar: Sheila Moxley 32 bls Isbn 9979-792-04-3 Leiðbeinandi verð: kr. 1490,-
Flokkar: Fræðsla, Sorg og sorgarviðbrögð, Barnabækur, Barnabækur af ýmsum toga
Þrastarunginn Efraím

Þrastarunginn Efraim
Hér er komið víða við í líflegri og skemmtilegri frásögn. Þetta er kærkomin bók öllum foreldrum sem vilja lesa fyrir börn sín og kenna þeim um Guð og það sem best er og dýrmætasta í lífinu. Í lok hvers kafla um Efraím og systur hans, Efemíu, er lítið minnisvers úr Biblíunni og bænarorð.
Teikningar eftir Ásdísi Sigurþórsdóttur myndlistarmann.
Kr. 1.890,-
Tilboð 1.380,-
Flokkar: Barnabækur af ýmsum toga
Ævintýri frá ýmsum löndum

Þessi bók er sérstaklega hugsuð fyrir foreldra sem vilja lesa upphátt uppbyggilegar sögur og ævintýri fyrir börnin sín. Margar sögur draga fram mikilvægi heiðarleika og trúmennsku, góðvildar og hjálpsemi. Aðrar segja frá kostum þess að vera einlægur og klókur þegar vanda ber að höndum og enn aðrar draga fram vonir og þrár barna sem fullorðinna þar sem farið er öruggum höndum um viðkvæm efni. Sögurnar og ævintýrin eru úr öllum heimsins hornum! Bob Hartman er kunnur fyrir lipran og lifandi frásagnahátt. Kímni og alvörufull hlýja svífa yfir vötnum í frásögn hans.
Bókin kostar 1780 krónurFlokkar: Barnabækur af ýmsum toga
Ævintýri dýranna

Þessi bók geymir margar spennandi og skemmtilegar sögur af alls konar dýrum úr öllum heimshornum. Sögurnar eru valdar með það í huga að þær geti hvatt börn til dáða og vakið samúð þeirra og elsku með þeim sem minna mega sín. Ótrúlegar sögur og sumar þeirra gætu gerst enn! Þessi bók hentar börnum á öllum aldri!
Bókin kostar 1780 krónur
Tilboð. 990,-
Flokkar: Barnabækur af ýmsum toga
Þegar litum rigndi
Þessi saga gerist í Grálandi en þar var allt grátt. Dag nokurn kom loftbelgur svífandi ofan af himnum. Um borð voru þrjú börn. Þetta er hrífandi saga sem hittir börnin í hjartastað og bendir fullorðnum á það sem býr að baki grámuskulegum hversdagsleikanum. Myndirnar draga fram hlýja kímnina og ástúðina sem sagan geymir.Flokkar: Barnabækur, Barnabækur af ýmsum toga
Í fótspor Jesú - verkefnabók fylgir

Í fótspor Jesú er bók sem a erindi við alla kristna menn. Bókin er prýdd einstökum litmyndum sem gera kunnustu sögur Jesú ljóslifandi í hugum lesenda. Myndirnar sýna fjölmarga staði í landinu helga, einstakt landslag og auk þess ýmsa hluti sem Jesús hefur eflaust sjálfur séð á sínum tíma. Höfundurinn, Henry Wansbrough, er heimskunnur fyrirlesari og hefur m.a. fengist við útgáfu á Biblíunni. Þekking hans á landinu sem Jesús ólst upp í kemur glöggt fram í þessari bók sem og djúpur skilningur hans á guðspjöllunum.
Verkefnabók til ljósritunar er fáanleg í Kirkjuhúsinu.
Hægt að nota í fermingarstarfi.
Tilboð Kr. 500,-
Flokkar: Fræðsla, Biblíufræðsla, Barna- og unglingastarf, Fermingarstarf, Barnabækur, Barnabækur af ýmsum toga
Óskir trjánna

Einu sinni voru 3 lítil tré uppi á fjalli nokkru og létu sig dreyma um hvað biði þeirra þegar þau yrðu stærri.
Hver kynslóðin af annarri hefur flutt söguna um trén þrjú frá foreldrum til barna; á jólum og páskum hefur hún verið sögð í kirkjum og meira að segja hefur tónlist verið samin við hana.Bókin kostar 1.390 krónur
Flokkar: Barnabækur af ýmsum toga
Ævintýrið um himneska tréð

Barnabók um umhverfisvernd, sköpun, eyðileggingu og uppbyggingu. Bókin er prýdd glaðlegum og skemmtilegum myndum listamannsins Meilo So sem undirstrika þann boðskap að hver og einn getur haft áhrif á umhverfið og spornað við eyðileggingu og auðn.
Bókin kostar 690 krónurFlokkar: Barnabækur af ýmsum toga
Börn skrifa Guði

Bréfin í bókinni endurspegla heim barna, óskir þeirra, hugsanir og þrár. Þau sýna einlæga trú þeirra og vonir, draga fram efa þeirra og koma spurningum þeirra á framfæri. Sum eru alvörufull og önnur eru glettnisleg, jafnvel svo að lesandi skellir upp úr! Litprentuð bók. ISBN: 9979-765-39-9 -
Verð 1.390 krónur.
Tilboð. 500,-
Flokkar: Börn og foreldrar, Barnabækur af ýmsum toga
Dagar með Markúsi

Siggi, stóri bróðir Önnu á að fermast. Í fermingarfræðslunni lesa fermingarbörnin Markúsarguðspjall. Anna vill gjarnan fylgjast með og þess vegna les Siggi guðspjallið upphátt fyrir hana. Við fylgjumst með systkinunum þá mánuði sem Markúsarguðspjall er lesið. Þetta er spennandi tími og margar spuningar vakna hjá þeim eins og t.d. hvað merkir það að elska náungann? Og hvers vegna höldum við páska?
Bókin kostar 1990,-
Dýrin fylgja Jesú

Í bókinni eru smásögur sem rekja atburði dymbilviku og páska með augum dýranna. Með þeirra augum sjáum við atburðina í nýju ljósi. Þau fylgja Jesú eftir og segja frá óvæntum kynnum sínum af honum í aðstæðum sem okkur eru kunnar. Þessi kynni breyta lífi þeirra og þau sjá margt með nýjum hætti eins og lesandinn sjálfur þegar páskadagsmorgunn rennur upp. 70 bls. -
Bókin kostar 1.390 krónur.
Flokkar: Barna- og unglingastarf, Páskaefni - Jólaefni, Barnabækur af ýmsum toga
Einn dagur þúsund ár

Snorri er tólf ára. Hann býr með föður sínum sem er fornleifafræðingur sem tekur að sér að geyma stóra steinklukku um tíma. Klukkan er forngripur og Snorri kemst fljótt að því að hún býr yfir ógnarlegurm dulmætti. Hún er klukka eilífðarinnar og alheimsins, Þar er einn dagur þúsund ár og þúsund ár sem einn dagur. Undarlegir atburðir verða þess valdandi að Snorri kynnist víkingastelpunni Eddu en hún hefur aldrei bragðað pizzu eða farið í tölvuleik. Saman lenda þau í ótrúlegum ævintýrum og lífsháska.
Bókin kostar 2500 krónurFlokkar: Barnabækur af ýmsum toga
Elli og skilnaðurinn

Bókin um Ella og skilnaðinn er sprottin upp af áralangri vinnu með börn sem ganga í gegnum margvíslega erfiðleika í lífinu t.d. skilnað. Myndir bókarinnar eru lifandi og sterkar og hún er lærdómsrík fyrir börn og fullorðna. Bókin getur verið fyrst skref í samtali barna og fullorðinna um mál sem er sársaukafullt og nauðsynlegt að tala um. Höfundur textans er sálfræðingur og sérfræðingur í fjölskyldumálum. Hún hefur áratuga reynslu af vinnu með börnum og fjölskyldum. Elli fíll er sex ára gamall. Hann á heima í gulu húsi ásamt systur sinni og mömmu og pabba. Mamma hans og pabbi segja honum dag einn að þau ætli ekki að búa saman lengur. Eli og systir hans vilja ekki trúa þessu og botna ekkert í því hvers vegna mamma og pabbi �
Tilboð 900,-
Flokkar: Börn og foreldrar, Barnabækur af ýmsum toga
Englar hér og þar, englar alls staðar

Smásögur um engla. Uppspretta bókarinnar er Biblían sjálf. Í þessari bók eru englarnir hver öðrum ólíkir. Sumir eru stórir aðrir hressir og enn aðrir eru hörkutól. Eitt eiga þeir þó sameiginlegt, að vera sendiboðar Guðs, þjónar Guðs. Sögurnar í bókinni eru lifandi og spennandi og að lestri loknum lítur lesandinn í kringum sig eftir englum... Þessi bók var valin beta barnabók á Bretlandi árið 1994 en hún hentar öllum unnendum smásagna og engla.
Bókin kostar 1980 krónur
Tilboð 600 krónur
Flokkar: Hugleiðingabækur, Barnabækur af ýmsum toga
Faðir vor

Bænin Faðir vor er bænin sem Jesús kenndi lærisveinum sínum. Þótt við höfum kunnað þessa bæn frá barnæsku þá er ekki alltaf auðvelt að útskýra fyrir börnum hvað einstaka bænir og orð hennar merkja. Í þessu kveri er leitast við að bregða upp myndum til að varpa ljósi á hvað í bæninni felst.
Bókin kostar 490 krónur
Flokkar: Barnabækur af ýmsum toga
Faðir vor bók fyrir börn
Myndræn útskýring á bæninni Faðir vor, fyrir börn.
Myndskreytingar gerði Halla Sólveig Þorgeirsdóttir.
Verð kr. 490,-
Flokkar: Barnabækur af ýmsum toga, Bænabækur fyrir börn
Fylgjum Jesú

Fylgjum Jesú er aðgengileg bók um kristna trú handa ungu fólki. Í henni eru mörg verkefni til að leysa og mörgum spurningum varpað fram eins og t.d. er Guð til? Hvað er trú og hvað er Jesú? Hún tekur á helstu atriðum kristinnar trúar í 31 skrefi og er kjörin til að nota í samtölum við börn og unglinga. Bókin er myndskreytt með hressilegum myndum sem hæfa unglingum. Bókin dregur fram kjarnaatriði Biblíunnar og verður lesndum hvatning til að spyrja og leita.
Bókin kostar 1500 krónur
Flokkar: Fermingarstarf, Barnabækur af ýmsum toga
Jesús maðurinn sem breytti sögunni

Hvað vitum við um Jesú? ...hvernig var hann? ...hvernig voru vinir hans? ...hvers vegna flykktist fólk til að hlusta á hann? ... hvað kenndi hann? ...hvers vegna dó hann? Í þessari bók kynnumst við manninum sem breytti sögunni, landinu sem hann bjó í, fólkinu sem þekkti hann, störfum hans og óvinum hans. Í máli og myndum er greint frá lífi og starfi frelsarans. Hentar vel til kennslu í skólum og fermingarfræðslu.
Bókin kostar 1200 krónur
Flokkar: Barna- og unglingastarf, Fermingarstarf, Barnabækur af ýmsum toga
Leiðin til Leikheima

Leiðin til Leikheima er ný barnabók eftir Elínu Elísabetu Jóhannsdóttur, sem Skálholtsútgáfan gefur út. Leikheimar eru dásamleg veröld sem eingöngu börn geta fundið. Þeir eru jafnstórir og hugmyndaflugið og ímyndunaraflið samanlagt. Tvíburarnir Bíbí og Bassi komast þangað og taka þátt í ótrúlegum atburðum þegar vandræðaunglingarnir Fúli, Vitsi vondi og Gratis glæpafingur villast til Leikheima. Bókin hefur tvö upphöf, annað segir söguna frá sjónarhóli tvíburanna en sé bókinni snúið við má lesa sömu sögu, sagða af þeim kumpánum Fúla, Vitsa vonda og Gratis glæpafingri.
Verð 2340 krónur
Tilboð 600 krónur
Matti hugsar málin

Bókin geymir stuttar og lifandi frásagnir úr lífi ellefu ára stráks sem heitir Matti. Það er margt sem drífur á daga hans og hann glímir við ýmislegt. Margar spurningar vakna hjá honum um lífið og tilveruna og hvann leitar svara við þeim. Matti hugsar málin er kjörni bók fyrir 8-12 ára börn í kirkjustarfi svo og yngri bekki grunnskólans. Bók sem hægt er að nota í umræðum um mörg mál sem börn velta fyrir sér.
Bókin kostar 1990 krónur
Músin og eggið

,,Ég er orðin þreyttur á því að fá alltaf egg í matinn!" Hvort sem uppskeran hefur góð eða slæm hafa afi og amma aldrei þurft að þola hungur því í hreiðri doppóttu hænunnar liggur alltaf nýorpið egg. Dag nokkurn finnst afa hann þurfa að breyta til og fá eitthvað annað að borða. Doppótta hænan gerir allt sem hún getur til að uppfylla ósk hans. Þá fyrst lærir afi að meta að verðleikum það sem hann hafði fyrir. Frábærar myndir príða þessa sígildu sögu.
Bókin kostar 750 krónur.Flokkar: Barnabækur af ýmsum toga
Siría

Siría er agnarlítil ævintýravera, sem á heima í jarðheimum. Einn fagran vormorgun bjó hún um sig á meðal blómanna í garðinum. Þar eignast hún marga góða vini og lendir í margvíslegum ævintýrum. Hún kynnist bæði gleði og sorg í samskiptum sínum við menn og dýr.
Bókin kostar 500 krónurFlokkar: Barnabækur af ýmsum toga
Sálmabók barnanna

Ný útgáfa 2009
Þessi nýja söngbók hefur að geyma allt það besta sem samið hefur verið og sungið með börnum í áratugi, en einnig eru í bókinni fjölmargir nýlegir og nýir sálmar og lög, og hefur þar verið reynt að mæta þörfum yngstu barnanna sem og þeirra sem eldri eru.
Bætt hefur verið í bókina nýjum sálmum og söngvum í viðbæti, m.a. söngvum Hafdísar Huldar Þrastardóttur af geisladisknum Englar í ullarsokkum (sjá geisladiskar)
Halla Sólveig Þorgeirsdóttir myndlistarmaður teiknaði kápu en myndskreytingar sálmanna eru eftir Kristínu Arngrímsdóttur. ISBN 9979-9464-8-2 -
Bókin kostar 2800 krónur.
Flokkar: Barna- og unglingastarf, Barnabækur af ýmsum toga, Sálmabækur
Tíu boðorð Guðs

Tíu boðorð Guðs. Leiðsögn á vegi lífsins.
Mjög falleg bók um boðorðin og hvaðan þau koma.
Hvert boðorð er útskírt með texta og fallega myndskreytt.
Skálholtsútgáfan
Kr.990.-
Flokkar: Barnabækur, Barnabækur af ýmsum toga
Tiu boðorð Guðs

Tíu boðorð Guðs - leiðsögn á vegi lífsins.
Speki Biblíunnar er sígild leiðsögn á vegi lífsins handa öllum.Bókin kostar 990 krónur.
Af hverju afi?

Bókin Af hverju, afi? er komin út hjá Skálholtsútgáfunni. Í þessari bók talar afi við börn sem hlakka til jólanna. Börnin spyrja afa um jólin í gamla daga og um fyrstu jólin þegar Jesús fæddist. Þau spyrja um gjafir, gamla jólasiði og gömul orð úr Biblíunni og kunnum jólasálmum eins og meinvill sem lá í myrkrunum. Afinn í þessari bók, Sigurbjörn Einarsson, biskup, hjálpar foreldrum að svara og að uppfræða börnin. Orð hans bera með sér hlýju og kímni ásamt visku hins aldna. Bókin svarar ekki síður spurningum fullorðinna um tíma sem er liðinn og skildi svo margt eftir handa börnum á öllum aldri. Bókin kom fyrst út árið 1984 og hefur lengi verið ófáanleg. Hún er sígild bók og ómissandi dýrgripur á aðventu og jólum.
Bókin kostar 2200 krónur
Flokkar: Barnabækur af ýmsum toga, Jólabækur
VERNDARENGILL LEYSIR MÁLIN

Hííííí-eróóóóónýmus! Hííííí-eróóóóónýmus! - hrópar Pétur við dyr himnaríkis. Það heyrist greinilega að hann er reiður...
Litli engilinnn, hann Híerónýmus, er mikill prakkari. Hann eltist við himneskar kindur, týnir lyklinum að hliði himnaríkis og truflar kórsöng himinsins. Hvernig ætti slíkur engill að geta orðið góður verndarengill? Dag nokkurn fær Híerónýmus verðugt verkefni og sekkur sér ofan í það. Það er ekki auðvelt því sá sem hann á að vernda er fjörkálfurinn Tommi ekki svo ólíkur Híerónýmusi sjálfum.
Verndarengill leysir málið er hugljúf og fjörleg saga sem hvetur okkur til að hafa gát á börnum okkar, sjálfum okkur og öðrum, svo allt fari vel. Höfundur: Jutta Timm Myndskreytingar: Ursel Scheffler 36 bls
Leiðbeinandi verð: kr. 1980
Tilboð 900,-
Flokkar: Barnabækur af ýmsum toga
ÍSLENSK LITABÓK SEM JAFNFRAMT ER LESBÓK

Sigrún Hanna Ólmarsdóttir hefur teiknað þessa fallegu bók og Elín Elísabet Jóhannsdóttir endursagt 30 sögur af Jesú. Hér geta börnin litað þær 30 myndir sem fylgja sögunum.
Verð kr. 1490,- Fæst í verslunum um land allt. Tilboð kr.750,-
Flokkar: Barnabiblíur og sögur úr Biblíunni, Barnabækur af ýmsum toga
KATLA OG KETILL KOMA Á ÓVART - NÝ ÍSLENSK BARNABÓK

Texti: Hvernig læra börnin um Jesú?Auðvitað getur enginn nema Jesús mettað 5000 manns á fimm brauðum og tveimur fiskum! En börn geta lært að deila nestinu sínu með öðrum sem ekkert hafa. Þau geta líka lært að fyrirgefa öðrum.Í þessari bók læra börnin að spyrja: Hvað myndi Jesús gera?Höfundar bókarinnar er áhugahópurinn Sippóra sem hittist reglulega til að vinna skemmtileg verkefni á kristnum grunni. Fundarstaður er kaffistofan í Kirkjuhúsinu.
Bókin kostar Kr. 1.590
Flokkar: Barnabækur af ýmsum toga



