KIRKJUHÚSIÐ - SKÁLHOLTSÚTGÁFAN, OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 9 - 17 OG

1. LAUGARDAG HVERS MÁNAÐAR Í SUMAR FRÁ KL. 11:30 - 15:30

KVÖLDBÆNAFJÁRSJÓÐUR

skrar/fjársjóðir saman þrengra-100.jpg

BÆNIR OG BIBLÍUVERS AÐ KVÖLDI DAGS
Þessi fjársjóður geymir 84 kort – öðrum megin er biblíuvers sem auðvelt er að tileinka sér, hinum megin er bæn. Hér er dæmi;
RITNINGARVERS;
Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning.
Matteusarguðspjall 6.34
BÆN:
Guð, vertu nálægur þegar við erum hrædd.
Hjálpaðu okkur að lifa í augnablikinu og um leið í
trausti til þín sem ert eilífur og alltaf nálægur.
Hægt er að lesa eitt á kvöldi í 12 vikur eða búa til sína eigin aðferð.  Fæst  í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31 sími 528 4200 - kr. 2500,-

Flokkar: Andleg leiðsögn

TRÚ OG TILGANGUR LÍFSINS - HVER ERU SVÖR KRISTINNAR TRÚAR?

skrar/heimas Hvað viltu veröld_kápa_lowr-100.jpg

Hvað viltu, veröld? og Leit og svör er heiti pistla eftir Sigurbjörn Einarsson, biskup sem birtust í Morgunblaðinu, vikulega á þriggja ára tímabili, árin 2007-2009. Pistlarnir vöktu mikla athygli. Hér birtast þeir á bók ásamt fleira efni, þar á meðal hugleiðingum hans um ellina. Einnig má lesa hér síðustu prédikun hans, sem hann flutti á Reykholtshátíð 2007. Verð kr. 3490,-

Flokkar: Spurningar lífsins, Kristin trú

DAGINN Í DAG 2 - ER KOMINN Í VERSLANIR UM LAND ALLT.

skrar/Daginn í dag 2.jpg

Daginn í dag 2 er kominn út. 
DVD Daginn í dag 2, er sjálfstætt framhald af samnefndum þáttum sem komu út árið 2010 og slógu rækilega í gegn.
Daginn í dag 2 miðlar gildum kristinnar trúar á ferskan máta í þremur 33 mínútna þáttum. Hafdís og Klemmi eru sem fyrr dugleg að breyta hversdagslegum atburðum í ævintýri. Þau taka m.a. þátt í spennandi kassabílakappakstri, halda hæfileikasýningu og horfa á sjónvarpsþáttinn Nebbnilega áður en þau leggja af stað í sunnudagaskólann. Þá sjáum við brúðurnar Benna og Nebba eiga í höggi við dularfullan nebbaþjóf!Á disknum syngur  barnahópur tólf sunnudagaskólalög og táknar með tali (TMT). Í lok hvers þáttar kemur Tinna táknmálsálfur, sem mörg börn þekkja úr Stundinni okkar, í heimsókn og túlkar einn barnasálm á táknmáli. Þrjár dæmisögur Jesú eru færðar til nútímans í þáttunum.

Flokkar: Barnabiblíur og sögur úr Biblíunni

KRISTNAR ÍHUGANIR Á HLJÓÐBÓK

skrar/heimas_Kristnar íhuganir_hljóðbók_kápa_lowr-100.jpg

Sigurbjörn biskup les fjórtán íhuganir sínar sem áður komu út á myndbandinu Til íhugunar. Verð kr. 1990,-

AF HVERJU, AFI? Á HLJÓÐBÓK

skrar/heimas Af hverju afi_hljóðbók_kápa_lowr.jpg

Sigurbjörn biskup les fyrir börn sem hlakka til jólanna. Börnin spyrja afa um jólin í gamla daga og um fyrstu jólin þegar Jesús fæddist. Þessi upptaka var gerð af RUV. Bókin Af hverju, afi? fæst einnig í Kirkjuhúsinu.

SMÁBARNABIBLÍA MEÐ GLUGGUM TIL AÐ OPNA!

skrar/Smabarnabiblia-400.jpg

Góð kynning á frásögnum Gamla og Nýja testamentisins fyrir börn.

Á hverri síðu eru gluggar til að opna.  Fyrir innan leynast ýmisleg undrunarefni.  Börnin taka þannig þátt í að uppgötva efni hverrar sögu.

Samspil hrifandi myndskreytinga og hugljúfs texta kemur hinu góðkunna erindi Biblíusagnanna til skila á áhrifamikinn og ferskan hátt.

Hér er mesta saga sem nokkru sinni hefur verið sögð, sagan um það hverning Guð elskar okkur, færð í búning sem höfðar til hjarta hvers barns á öllum aldri.

Bókin kostar Kr. 1.990

Tilboð á bókinni út október Kr. 1.690

Flokkar: Barnabiblíur og sögur úr Biblíunni

DVD DAGINN Í DAG SUNNUDAGASKÓLINN HEIM - KOMINN ÚT!

skrar/daginn í dag_cover.jpg

DAGINN Í DAG DVD fyrir börn með fjórum þáttum sem minnir á sunnudagaskólann í kirkjum landsins.Efnið er grípandi með stuttum og snöggum myndskeiðum í anda nútímans! Brúðuþættir, hressileg sunnudagaskólalög, gamanmál, bænir og biblíusögur.

NÁNAR Á FACEBOOK: DAGINN Í DAG DVD SUNNUDAGASKÓLINN HEIM - FYLGIST MEÐ!

Kostar 2.490,-

 

Willow tree englastyttur og aðrar styttur

skrar/willowtree.png

www.willowtree.info

Flestar styttur á Willow tree heimasíðunni fást í Kirkjuhúsinu.

Nánari upplýsingar í Kirkjuhúsinu sími 528 4200

Englastytturnar kosta frá kr. 3290,-

Flokkar: Willow Tree

HVAÐ ER KRISTIN TRÚ?

skrar/kristin-tru-400.jpg

Bókin Hvað er kristin trú? gefur mörg áhugaverð svör og kunna sum hver að ýta hressilega við lesandanum. Höfundur kynnir í stuttu máli sögu kristinnar trúar, siðfræði hennar og mannskilning, og ræðir umdeild mál sem snúast um kynferði, kynlíf og stjórnmál. Þetta er ekki hefðbundin útlegging á texta Biblíunnar, kirkjusögu eða trúfræði, heldur miklu fremur bók sem skorar á kristna trú sem og önnur trúarbrögð að horfast í augu við sögu sína og samtíð. Og sú áskorun kemur úr herbúðum þeirra sjálfra og frá öðrum. Hvernig á kristin trú að bregðast við öðrum trúarbrögðum og annarri menningu?Halvor Moxnes (f. 1944) er prófessor við guðfræðideild háskólans í Ósló. Hreinn S. Hákonarson þýddi.

Bókin kostar Kr. 2.980

Flokkar: Spurningar lífsins, Biblíufræðsla, Kristin trú

NÝR SÁLMADISKUR MEÐ SÁLMUM SIGURBJÖRNS EINARSSONAR, BISKUPS

skrar/CD_COVER-100.jpg

Hjartað játi, elski, treysti heitir nýr sálmadiskur sem inniheldur 15 sálma eftir Sigurbjörn biskup í flutningi Ernu Blöndal, söngkonu, Gunnars Gunnarssonar, organista (píanó, orgel), Arnar Arnarsonar (gítar) Jóns Rafnssonar (bassi) og Magneu Árnadóttur (þverflauta) Einnig syngja með þau Sólveig Samúelsdóttir og Benedikt Ingólfsson.

Hér má finna vel þekkta sálma eins og Dag í senn, Eigi stjörnum ofar, Þú mikli Guð ert með oss á jörðu og Fræ í frosti sefur. Einnig sálmana Þeir léðu honum jötu í fjárhúsi fyrst og Ég veit um himins björtu borg ásamt mörgum fleiri sálmum.

Fæst í Kirkjuhúsinu og víðar, í Eymundsson, Pennanum, Hagkaup, Tólf tónum.

Kr. 2300,-

Flokkar: Geisladiskar

BRAUTRYÐJANDINN - ÆVISAGA ÞÓRHALLS BJARNARSONAR, BISKUPS EFTIR ÓSKAR GUÐMUNDSSON

skrar/brautr.fors70x100.jpg

Hinn frjálslyndi ritstjóri og útgefandi, kennari og skólamaður, alþingismaður og búnaðarfrömuður, Þórhallur Bjarnarson, var biskup landsins 1908‒1916. Af einstakri ljúfmennsku aflaði hann sér vinsælda á unga aldri og þótti snemma líklegur til forystu í íslensku þjóðfélagi. Ungur naut hann atlætis Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn – og sjálfur var hann gæfusmiður margra manna.
Óskar Guðmundsson rithöfundur hefur náð að fanga sögu merkilegs fólks, spegla ótrúlega tíma á sköpunarskeiði samfélags á Íslandi, og spinna þráð í  þróttmikla sögu af Þórhalli Bjarnarsyni.
Ævisaga hans spannar tímabilið frá gamla bændasamfélaginu í ánauð til frjálshuga borgaralegs þjóðfélags á mótunarskeiði. Þórhallur var um margt mikilhæfur maður og ævisaga hans greinir frá sigrum hans og sorgum og varpar um leið ljósi á spennandi tímabil í sögu Íslendinga ...

Bókin fæst í bókaverslunum og í Kirkjuhúsinu.

Tilboðsverð Kr. 3.490

FJÁRSJÓÐUR - 84 KORT MEÐ BIBLÍUVERSUM OG BÆNUM

skrar/Fjarsjodur_3131-400.jpg

Hvar sem FJÁRSJÓÐUR þinn er þar mun og hjarta þitt vera
Bænir og biblíuvers í önnum hversdagsins Þessi fjársjóður geymir 84 kort – öðrum megin er biblíuvers sem auðvelt er að tileinka sér, hinum megin er bæn.
BÆN: Guð. Of oft gleymi ég mér og tek ógætilega til orða þegar rætt er um fólk sem mér fellur ekki við. Hjálpa mér að gæta tungu minnar svo hún skaði hvorki mig né aðra.
RITNINGARVERS: Talið ekki illa hvert um annað, systkin. (Jakobsbréfið 4.11)

Fæst  í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31 sími 528 4200 - kr. 2500,-

 

 

Flokkar: Andleg leiðsögn