KIRKJUHÚSIÐ ER OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 9:00 - 17:00

Fréttir

Gildin á Þjóðfundinum 2009 á bók.
Gildin sem valin voru á Þjóðfundinum 2009 verða viðfangsefni bókar sem Skálholtsútgáfan gefur út í haust.
Útgáfan hefur gert samning við Gunnar Hersvein rithöfund og heimspeking um að skrifa verkið.
Gildin sem fjallað verður um voru ekki valin af höfundi bókarinnar, útgáfunni eða hagsmunasamtökum,
heldur af visku fjöldans þar sem hver og einn stóð jafnfætis á Þjóðfundinum í Laugardalshöllinni 14. nóvember 2009.
Bókin á að nýtast einstaklingum, hópum og fyrirtækjum sem vilja efla þessi gildi með sjálfum sér eða til að breyta samfélaginu. Tólf gildi nutu mest fylgis meðal tæplega 1500 þjóðfundarfulltrúa. Heiðarleiki var það gildi sem flestum fannst mikilvægast fyrir samfélagið.
Þar á eftir kom jafnrétti, virðing og réttlæti. Því næst kærleikur, ábyrgð, frelsi, sjálfbærni og lýðræði. Fjölskyldan, jöfnuður og traust voru einnig ofarlega á blaði.
Þá mun hófsemdin koma við sögu í bókinni.
Gunnar Hersveinn hefur m.a. skrifað bækurnar Gæfuspor - gildin í lífinu (JPV 2005),
og Orðspor – gildin í samfélaginu  (JPV 2008).
Hann fékk nýlega viðurkenningu Fjölís frá Rithöfundasambandi Íslands fyrir ritstörf.
BÓKIN KEMUR ÚT 25. OKTÓBER NÆSTKOMANDI

 

DVD SUNNUDAGASKÓLINN HEIM - VÆNTANLEGT Í NÓVEMBER

0

Skálholtsútgáfan gefur út í haust DVD disk fyrir börn með fjórum 25 mínútna þáttum sem minnir á sunnudagaskólann í kirkjum landsins.Efnið er grípandi með stuttum og snöggum myndskeiðum í anda nútímans! Brúðuþættir, hressileg sunnudagaskólalög, gamanmál, bænir og biblíusögur.

NÁNAR Á FACEBOOK: DAGINN Í DAG DVD SUNNUDAGASKÓLINN HEIM - FYLGIST MEÐ!

 

FYRIRGEFNING OG SÁTT

skrar/Fyrirgefning og satt-100.jpg

Reiði og ásökun í annars garð er þung byrði að bera, ekki síst nú þegar sársauki og biturð grafa víða um sig í samfélaginu í kjölfar efnahagshrunsins.

Í þessa bók skrifa 86 Íslendingar um fyrirgefningu og sátt út frá ýmsum sjónarhornum. Mörgum spurningum er varpað fram:

* Er alltaf hægt að fyrirgefa?

* Hvað er iðrun?

* Er reiði eðlileg tilfinning?

* Er hægt að lifa ósáttur?

Þessar og fleiri spurningar glíma höfundar við í óvenjulegum aðstæðum íslensks samfélags nútímans; hvernig þeir taka á fyrirgefningu og sátt í samskiptum við fjölskyldu og maka, vini og vinnufélaga en einnig andspænis veikindum og missi, vonbrigðum og misnotkun.

Höfundar koma víða að úr samfélaginu og túlka mismunandi lífsreynslu.

Bókin var skrifuð á þessu ári. Tilboðsverð í Kirkjuhúsinu kr. 3490,-

Flokkar: Andleg leiðsögn, Spurningar lífsins

GUÐ, Í ÞINNI HENDI

skrar/Guð, í þinni hendi-100.jpg

NÝ SÖNGBÓK FYRIR ÆSKULÝÐSSTARF KIRKJUNNAR ER KOMIN ÚT
Safnað hefur verið saman  í einkar fallega bók, 130 söngvum og sálmum sem hafa verið sungnir í æskulýðsstarfi kirkjunnar síðustu árin, sem og nýrri sálmum og söngvum víða að. Mikil vinna var lögð í lagaval þar sem lögð var áhersla á fjölbreytta söngva sem henta ungu fólki. Bókin er ætluð til notkunar í unglingastarfi kirkjunnar en nýtist fyrir mun breiðari aldurshóp við ólíkar aðstæður.Hverju lagi fylgja nótur og gítargrip sem er ætlað til að auðvelda þátttakendum í æskulýðsstarfinu að nota bókina og auka áhuga á tónlist og söng Þessi bók er unnin á vegum ÆSKR OG ÆSKÞ í samvinnu við söngmálastjóra. Það er von þeirra sem unnu að bókinni að hún eigi eftir að efla söng í æskulýðsstarfinu þar sem söngurinn er mikilvægur þáttur í helgihaldi æskulýðsstarfsins og góðir textar gott veganesti út í lífið.
Verð bókarinnar er kr. 1500,- ef keypt eru 10 eintök eða fleiri.

Flokkar: Barna- og unglingastarf, Tónlistarbækur

Söngvasveigur 15 - HEYR ÞÚ OSS HIMNUM Á

15. BÓKIN Í BÓKARÖÐINNI SÖNGVASVEIGUR FYRIR BARNAKÓRA, BLANDAÐA KÓRA OG KVENNAKÓRA - 64 KIRKJULEGIR SÖNGVAR FYRIR BLANDAÐA KÓRA

Verð kr. 2000,-

Flokkar: Tónlistarbækur

BÖRN OG BÆNIR - LÍFSGÆÐABÓK FYRIR FJÖLSKYLDUNA KOMIN ÚT

skrar/Börn og bænir-100.jpg

Börn og bænir er bók handa foreldrum sem vilja kenna börnum sínum að biðja og ala þau upp í kristinni trú.
Öll viljum við búa börnin okkar sem best undir lífið svo framtíð þeirra verði farsæl og björt. Við megum aldrei gleyma því að börnin eru það dýrmætasta sem við eigum og að hlutverk uppalenda er að móta þau á heilbrigðan hátt og sómasamlegan.

 Börn og bænir geymir 
...bænabók fjölskyldunnar kvölds og morgna og í atvikum dagsins
...leiðsögn um trúaruppeldi
...þætti um bænalíf, signingu og bæn
...umfjöllun um skírnina í myndum og máli
...spurningar barna um sorg, Guð, Jesú, heiminn og þau sjálf
...hugmyndir að hollum samverustundum barna og foreldra
 …er bók sem styður við bakið á uppalendum í ánægjulegu en
   vandasömu starfi.   

Hún er traust leiðsögn í trúarlegu uppeldi barnsins.
Dr. Sigurður Pálsson skrifaði megnið af bókinni ásamt hópi áhugasamra.

Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, myndskreytti bókina. Kr. 3500,-

Flokkar: Bænabækur fyrir börn

FLEIRI ORÐ Í GLEÐI

skrar/fleiri orð í gleði bara forsíða-100.jpg

FLEIRI ORÐ Í GLEÐI

Bókin geymir gott veganesti út í dagsins eril og amstur. Hún er framhald metsölubókarinnar Orð í gleði, sem margir Íslendingar þekkja. Þessar bækur eru teknar saman af Karli Sigurbjörnssyni, biskup.

Hér má finna glettin orð en þó alvörufull og djúpvitur sem ylja lesandanum um hjartarætur og vekja bros á vör:  Örsögur, íhuganir, myndbrot og ljóð, spekiorð og bænir víðs vegar að sem styrkja og næra hugann. Allt eru þetta hlý orð og  sterk sem höfundur vill deila með öðrum til að uppörva í trú og efla von. Kímnin er aldrei langt undan, hin óvæntu sjónarhorn sem varpa ljósi yfir það sem máli skiptir í lífinu.

,,Orð í gleði og Fleiri orð í gleði eru bækur sem hægt er að opna hvar sem er, hvenær sem er. Boðskapurinn á við í leik og starfi. Ég les bækurnar fyrir mig, börnin mín og mæli með þeim við alla sem vilja gleði, von og trú." Segir Sigríður Arnardóttir, dagskrárgerðarmaður.

kr. 2.490,-

Flokkar: Hugleiðingabækur, Andleg leiðsögn

SPEKISÖGUR FRÁ ÝMSUM LÖNDUM

skrar/baekur/spekisogur.jpg

Fimmtán spekisögur sem hjálpa okkur að læra hvert af öðru og búa til betri heim, friðsælan og réttlátan.
Bók um speki og visku hana börnum og fullorðnum.
Sögurnar eru frá Gana, Jamaíka, Galíleu, Grikklandi, Arabíu, Indlandi, Ítalíu, Afganistan, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Rússlandi.

Ríkulega myndskreytt bók.

Verð kr. 1980,-

Viltu vita meira um bæn og bænalíf?

skrar/Stort og smatt-100.jpg

Stórt og smátt um bænina er nýútkomin bók hjá Skálholtsútgáfunni

 

Skálholtsútgáfan hefur gefið út nokkrar bænabækur, bæði fyrir börn og fullorðna,  en áður hefur ekki komið út bók sem fjallar eingöngu um bænina.

Viltu efla og þroska bænalíf þitt? Hvað er bæn?  Hvernig biðjum við?

Bókin kostar kr. 2700,-

GUÐ, HVERS VEGNA? ANDLEGT FERÐALAG ...

skrar/Gud, hvers vegna-100.jpg

Nýútkomin bók um trúarlega iðkun
Í bókinni eru gagnlegir inngangskaflar um bænalíf, biblíulestur og aðra trúarlega iðkun, hvort sem tekst að verja fimmtán mínútum eða aðeins tveim mínútum á dag í andlega iðkun.Síðari hluti bókarinnar er 40 daga andlegt ferðalag með ritningarversi, hugleiðingu og bæn ásamt hagnýtum leiðbeiningum. Hér eru einnig leiðbeiningar fyrir hópa fólks sem vill  vinna saman með efni bókarinnar. Vigfús Ingvar Ingvarsson, þýddi. Verð kr 2700,-

 

Flokkar: Andleg leiðsögn, Tólf sporin andlegt ferðalag

OG ÞAÐ VARST ÞÚ - Geisladiskur

skrar/ogþaðvarstþú-100.jpg

Týndar 25 ára gamlar hljóðritanir komnar í leitirnar.

Páll Óskar Hjálmtýsson (13 ára) og Sverrir Guðjónsson ásamt börnum syngja söngva um allt það sem mamma, pabbi, afi og amma kenndu okkur frá upphafi vega; um virðingu, traust, heiðarleika, að vera trúr og sannur, umhyggja fyrir hinu stóra sem smáa í okkar umhverfi, fyrirgefningin, um bænina; “… sitji Guðs englar saman í hring …”

Þessi geisladiskur inniheldur þrettán lög, mörg þeirra þekkja börn, foreldrar, ömmur og afar úr sunnudagaskólanum. Þar má nefna; Í bljúgri bæn og Einn tveir þrír fjórir fimm; Ég verð aldrei einmana og Ég get sungið af gleði. Er vasapening ég fæ og Ó Guð, ég veit hvað ég vil.

Verð kr. 2400,- Fæst í Kirkjuhúsinu og öllum helstu plötu- og bókaverslunum og stórmörkuðum.

Flokkar: Geisladiskar